Vængir Júpíters 3-0 Augnablik
1-0 Hjörleifur Þórðarson(víti)
2-0 Arnór Daði Gunnarsson
3-0 Hjörleifur Þórðarson(víti)
Vængir Júpíters unnu sannfærandi sigur í 3.deild karla í kvöld er liðið spilaði við Augnablik.
Vængirnir gátu komist nær toppliði KV með sigri og nýtti sér það tækifæri og hafði betur örugglega, 3-0.
Liðið er nú þremur stigum frá toppsætinu en Augnablik er í 10. sæti deildarinnar með jafn mörg stig og Skallagrímur sem er í fallsæti.