Það yrði áhættusamt fyrir Real Madrid að fá til sín miðjumanninn Paul Pogba í sumar.
Þetta segir fyrrum forseti félagsins Ramon Calderon en Pogba hefur gefið það út að hann sé opinn fyrir því að yfirgefa Manchester United í sumar.
Calderon segir að hegðun Pogba henti ekki Real en þar myndi hann vinna með Zinedine Zidane. Þeir eru landar frá Frakklandi.
,,Ég tel að það yrði áhættusamt. Hann hefur sannað það að hans hegðun hentar ekki alltaf félagi eins og Real Madrid,“ sagði Calderon.
,,Hann vill vera söguhetjan, hann lendir í rifrildum við leikmenn og þjálfara. Zinedine Zidane telur sig geta lagað hans hegðun.“