Það er talið líklegt að Philippe Coutinho muni yfirgefa lið Barcelona í þessum sumarglugga.
Coutinho hefur spilað með Barcelona í um eitt og hálft ár en hann kom til félagsins frá Liverpool.
Í dag er greint frá því að Manchester United, Chelsea og Paris Saint-Germain vilji semja við leikmanninn.
Coutinho er opinn fyrir því að ganga í raðir Chelsea en United kemur á sama tíma ekki til greina.
Coutinho er fyrrum leikmaður Liverpool en rígur liðsins við United kemur í veg fyrir þau skipti.
Blaðamaðurinn Duncan Castles segir að Coutinho muni velja Chelsea fram yfir önnur félög ef félagaskiptabanni klúbbsins verður frestað.