Jose Mourinho hefur verið án starfs síðan í desember en hann var þá rekinn frá Manchester United.
United stýrði United í yfir tvö ár en hann var rekinn eftir slæmt gengi á síðustu leiktíð og tók Ole Gunnar Solskjær við.
Ferilskrá Mourinho er mögnuð en hann hefur stýrt liðum eins og Chelsea, Real Madrid og United.
Mourinho skoðar nú hvað er í boði og er útlit fyrir það að hann muni ekki taka við öðru félagsliði.
Portúgalinn er hrifinn af þeirri hugmynd að taka við landsliði, eitthvað sem hann hefur ekki gert áður.
,,Ég hugsa mikið um bæði HM og EM. Eins og staðan er þá sé ég mig taka við landsliði frekar en félagsliði,“ sagði Mourinho.