Forráðamenn Derby County eru meðvitaðir um það að Frank Lampard mun væntanlega láta af störfum, sem knattspyrnustjóri liðsins.
Félagið sem hann elskar, Chelsea, hefur áhuga á að ráða hann til starfa. Chelsea vantar stjóra eftir að Maurizio Sarri tók við Juventus.
Lampard var að klára sitt fyrsta ár í þjálfun og var nálægt því að koma Derby í ensku úrvalsdeildina.
Derby hafði samband við Steven, Gerrard, stjóra Rangers. Hann var einnig að klára sitt fyrsta tímabil en vill halda áfram í Skotlandi.
Margir horfa á Gerrard sem framtíðar stjóra Liverpool en hann vill ekki taka við Derby í dag.