Inter Milan hefur boðið Manchester United að kaupa framherjann Mauro Icardi í sumar.
Frá þessu greina ítalskir miðlar en Icardi hefur mikið verið orðaður við brottför frá félaginu síðustu mánuði.
Ástæðan er einföld en Inter hefur áhuga á að fá framherjann Romelu Lukaku til sín frá einmitt United.
Inter er opið fyrir því að skipta á leikmönnunum en United þyrfti að borga aukalega fyrir framherjann.
Icardi er 26 ára gamall en hann fær ekki þann samning hjá Inter sem hann fer fram á.
Gazzetta dello Sport segir að dyrnar séu opnar fyrir Icardi ef hann vilji fara til Englands.