Vivianne Miedema er knattspyrnukona sem margir kannski kannast við en hún leikur með Arsenal á Englandi.
Miedema er einnig landsliðskona Hollands og spilar með liðinu á heimsmeistaramótinu þessa stundina.
Miedema er aðeins 22 ára gömul en þrátt fyrir það er hún orðin markahæst í sögu hollenska landsliðsins!
Miedema skoraði tvö mörk í sigri á Kamerún í gær og er nú búin að mæta met Manon Melis sem skoraði 59 mörk.
Það er ótrúlegt hversu marga leiki Miedema hefur spilað þrátt fyrir ungan aldur en hún á að baki 77 landsleiki.
Hún hefur spilað með Arsenal síðan 2017 og hefur síðan þá skorað 24 mörk í 28 leikjum fyrir liðið.