Tanguy Ndombele, leikmaður Lyon í Frakklandi, er á óskalista enska liðsins Tottenham.
Þetta staðfesti Ndombele sjálfur í dag en Tottenham vill fá þennan 22 ára gamla miðjumann í sumar.
Frakkinn er sjálfur áhugasamur og segir að öllum leikmönnum langi að spila fyrir lið eins og Tottenham.
,,Já þessi áhugi er til staðar, Tottenham er frábært lið og stórt félag,“ sagði Ndombele við Telefoot.
,,Þeir enduðu í fjórða sæti og komust í úrslit Meistaradeildarinnar. Þetta er stórlið eins og önnur lið. Hvaða leikmaður hefði ekki áhuga á að semja þar?“