Paul Pogba, leikmaður Manchester United, er búinn að tjá félaginu hvað hann vilji gera í sumar samkvæmt nýjustu fregnum.
Pogba hefur undanfarin þrjú ár leikið með United en hann kom til félagsins frá Juventus árið 2016.
Frakkinn hefur ekki áhuga á því að spila fyrir United á næstu leiktíð og vill komast til Real Madrid.
Hans fyrrum félag Juventus hefur einnig áhuga en Pogba mun frekar kjósa að ganga í raðir Real.
Miðjumaðurinn hefur rætt við United og farið fram á sölu. United vill fá að minnsta kosti 105 milljónir punda fyrir leikmanninn.
Zinedine Zidane er stjóri Real en hann er mikill aðdáandi Pogba og hefur áhuga á að fá hann í sumar.