KA 2-1 Grindavík
1-0 Hrannar Björn Steingrímsson(44′)
1-1 Alexander Veigar Þórarinsson(66′)
2-1 Elfar Árni Aðalsteinsson(70′)
KA lyfti sér upp í fimmta sæti Pepsi Max-deildar karla í kvöld er liðið spilaði við Grindavík á Akureyri.
KA var fyrir leikinn einu stigi á eftir Grindavík í áttunda sæti deildarinnar en komst yfir ofan með 2-1 heimasigri.
Það var Elfar Árni Aðalsteinsson sem tryggði KA sigur en hann kom liðinu í 2-1 á 70. mínútu leiksins.