Það eru mörg lið í Evrópu sem sýna hinum 23 ára gamla Everton Soares áhuga þessa dagana.
Everton er landsliðsmaður Brasilíu en hann kom við sögu í 3-0 sigri á Bólivíu í Copa America í gær.
Everton er orðaður við Manchester United en hann er samningsbundinn Gremio í heimalandinu þessa stundina.
,,Ég er leikmaður sem mun alltaf reyna að komast yfir andstæðinginn. Ég vil koma inn með boltann frá vinstri og klára færin vel,“ sagði Everton.
,,Þessi leikstíll hentar félögum í Evrópu vel og kannski get ég passað inn í lið Manchester United ásamt fleirum.“