Mohamed Salah, sóknarmaður Liverpool verður ekki með Liverpool gegn Barcelona í Meistaradeild Evrópu, á morgun.
Salah meiddist í sigri á Newcastle á föstudag og verður ekki klár í seinni leikinn. Liverpool er í brekku en liðið tapaði fyrri leiknum 3-0, á Nývangi.
Þá er Roberto Firmino einnig frá vegna meiðsla en hann hefur verið að glíma við meiðsli síðustu vikurnar.
Það vakti svo athygli í dag að Virgil van Dijk tók ekki þátt í æfingu Liverpool í dag, hann virðist vera tæpur fyrir leikinn.
Alex Oxlade-Chamberlain hefur fengið bakslag í endurkomu sína og er tæpur fyrir leikinn. Sömu sögu er að segja af Adam Lallana.
Fyrir var vitað að Naby Keita yrði frá vegna meiðsla, það gæti verið hausverkur fyrir Jurgen Klopp að velja í liðið.