Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hafði enga trú á því að sínir menn gætu snúið einvíginu gegn Barcelona í Meistaradeildinni við.
Þetta segir Sadio Mane, leikmaður Liverpool en liðið tapaði fyrri leiknum gegn Barcelona 3-0 á Nou Camp í undanúrslitunum.
Liverpool vann svo magnaðan 4-0 heimasigur en Mane hafði aldrei séð Klopp eins og hann var fyrir leikinn á Anfield.
,,Ég hafði aldrei séð stjórann svona, hvernig hann var fyrir leikinn gegn Barcelona,“ sagði Mane.
,,Hann hvatti okkur áfram en ef ég á að vera hreinskilinn þá hafði hann ekki trú á þessu.“
,,Hann er sérstakur, þig langar til að berjast fyrir hann og gefa allt í sölurnar fyrir hann.“