Það fóru fram þrír leikir í 2.deild karla í dag en fjórða umferð sumarsins hélt áfram.
Völsungur lyfti sér upp í annað sæti deildarinnar en liðið mætti ÍR og hafði betur 2-0 á heimavelli.
ÍR hefur verið í basli í sumar og situr í 10. sæti deildarinnar eftir leikinn með aðeins fjögur stig úr jafn mörgum leikjum.
Kári fékk á sama tíma skell á heimavelli en Fjarðabyggð kom í heimsókn í Akraneshöllina og vann öruggan 4-1 sigur.
Þróttur Vogum og Vestri áttust þá við en þar hafði Þróttur betur með tveimur mörkum gegn engu.
Vestri 0-2 Þróttur V.
0-1 Ingvar Ásbjörn Ingvarsson
0-2 Pape Mamadou Faye
Kári 1-4 Fjarðabyggð
Markaskorara vantar
Völsungur 2-0 ÍR
Markaskorara vantar