Ashley Cole, fyrrum landsliðsmaður Englands, hefur ákveðið að hætta við að hætta allavegana í bili.
Cole var búinn að ákveða það að þetta væri hans síðasta tímabil en hann samdi við Derby fyrr á árinu.
Hann er nú að íhuga að breyta þeirri ákvörðun og þá sérstaklega ef Derby kemst upp í efstu deild.
Cole mun líklega spila úrslitaleikinn við Aston Villa á mánudag um hvort liðið fer upp í efstu deild.
Cole er 38 ára gamall í dag og hefur spilað 11 leiki síðan hann kom til Derby í janúar.