Antonio Conte, fyrrum stjóri Chelsea, er að taka við liði Inter Milan á Ítalíu samkvæmt öllum helstu miðlum.
Conte hefur verið án félags í ár en hann var rekinn frá enska félaginu eftir síðasta tímabil.
Conte þekkir ítölsku deildina vel en hann er þekktastur fyrir tíma sinn hjá Juventus þar sem hann vann ófáa titla.
Samkvæmt fregnum kvöldsins mun Conte gera allt til að fá framherjann Romelu Lukaku til Inter í sumar.
Conte er aðdáandi Lukaku en hann spilar í dag með Manchester United og gæti verið fáanlegur í sumar.
Lukaku hefur spilað með United í tvö ár og er einnig á óskalista Juventus og AC Milan.