Manchester borg er blá þessa stundina en eins og flestir vita þá er Manchester City Englandsmeistari árið 2019.
City hefur verið besta lið Englands síðustu tvö ár en þeir bláu fögnuðu einnig sigri í deildinni á síðasta tímabili.
Það var mikið fagnað á götum Manchester í dag en City er nýbúið að tryggja sér ensku þrennuna með sigri í bikarnum.
Það var góð mæting þegar rúta City keyrði um götur borgarinnar og fögnuðu leikmenn með stuðningsmönnum.
Hér má sjá myndir síðan í dag.