Arsenal er í bílstjórasætinu þegar kemur að vængmanninum Hakim Ziyech samkvæmt enskm miðlum.
Ziyech er 26 ára gamall en hann átti frábært tímabil með Ajax sem komst í undanúrslit Meistaradeildarinnar.
Það er þó búið að staðfesta það að Ajax muni ekki koma í veg fyrir það ef Ziyech vill komast annað í sumar.
Hann mun kosta 25 milljónir punda í sumar og dreymir um að spila fyrir annað hvort Arsenal eða Barcelona.
Ziyech var valinn leikmaður ársins hjá Ajax en hann skoraði 21 mark og lagði upp önnur 24.