Dwaine Maynard, umboðsmaður Marcus Rashford, er búinn að fá nóg af þeim sögusögnum sem eru í gangi.
Rashford er einn mikilvægasti leikmaður United en er þessa dagana orðaður við Barcelona.
Spænskir miðlar og fleiri segja að Barcelona ætli að reyna við Rashford í sumarglugganum.
The Sun greinir þá einnig frá því að Rashford vilji komast burt eftir að United mistókst að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni.
Maynard fékk loksins nóg og birti mynd á Instagram síðu sína sem talar fyrir sig.
,,Stopp,“ skrifar Maynard og segir að fjölmiðlar séu nú að búa til sögusagnir.