Benjamin Mendy hefur upplifað ótrúlegt ár þrátt fyrir að hafa verið mikið meiddur.
Mendy spilar með stórliði Manchester sem vann enska bikarinn eftir 6-0 sigur á Watford í gær.
Það var sjötti titill Mendy á aðeins 12 mánuðum sem er ótrúleg tölfræði.
Mendy vann fjölda titla með City og fagnaði einnig sigri á heimsmeistaramótinu síðasta sumar.
Á öllum þessum tíma hefur Mendy aðeins spilað 22 leiki en það vantar ekki upp á verðlaunin.