Goðsögnin Dani Alves hefur staðfest það að hann ætli sér að spila í ensku úrvalsdeildinni.
Alves er 36 ára gamall í dag en hann er samningsbundinn Paris Saint-Germain í Frakklandi.
Alves er þó pirraður í París en hann vill fá tveggja ára samning frá PSG en félagið vill aðeins framlengja um eitt ár.
,,Sú hugmynd að enda ferilinn án þess að spila í ensku úrvalsdeildinni gengur ekki upp,“ sagði Alves.
,,Þar er spilaður besti fótbolti í heimi. Fyrst vegna virðingarinnar sem leikmenn fá frá stuðningsmönnum og svo vegna ástríðunar.“
,,Ef ég get spilað þar þá yrði það fullkomið en ég mun komast þangað sama hvað það kostar.“