Óskar Örn Hauksson, leikmaður KR, gæti misst af þónokkrum meiðslum miðað við fréttir dagsins.
Hjörvar Hafliðason eða Dr. Football greinir frá því á Twitter síðu sinni að Óskar Örn sé handleggsbrotinn.
Þetta eru skilaboð sem Hjörvar fékk frá sínum heimildarmönnum en Óskar brotnaði í leik gegn Grindavík í vikunni.
Það eru gríðarlega slæm tíðindi fyrir KR en Óskar er einn allra mikilvægasti leikmaður liðsins.
Óvíst er hversu lengi leikmaðurinn verður frá en ljóst er að fréttirnar eru ekki góðar fyrir þá svarthvítu.