Massimiliano Allegri mun ekki þjálfa lið Juventus á næstu leiktíð en hann segir bless eftir fimm ár hjá félaginu.
Þetta var staðfest í gær en Allegri og félagar fögnuðu sigri í ítölsku deildinni á tímabilinu.
Hann veit ekki hver mun taka við af sér en er þakklátur fyrir það að komast loks á ströndina.
,,Nafnið á næsta stjóranum? Ég veit það ekki, einhver þarf að vera á bekknum en ég veit ekki hver,“ sagði Allegri.
,,Sama hvernig fer þá munu þeir ráða frábæran þjálfara því Juventus er frábært félag.“
,,Hvert fer ég? Heim! Nú get ég farið á ströndina.“