Bayern Munchen er þýskur meistari sjöunda árið í röð en lokaumferð deildarinnar fór fram í dag.
Bayern var tveimur stigum á undan Borussia Dortmund fyrir umferðina og mætti Eintracht Frankfurt á heimavelli.
Bæjarar unnu sannfærandi 5-1 heimasigur þar sem Franck Ribery gerði tvennu fyrir liðið í sínum síðasta leik.
Dortmund kláraði sitt verkefni gegn Borussia Monchengladbach en það dugði ekki til.
Það er því tap Dortmund heima gegn Schalke í 30. umferð sem kostar liðið titilinn.