Zlatan Ibrahimovic, leikmaður LA Galaxy, bíður spenntur eftir leik Manchester United og Barcelona á morgun.
Þau lið eigast við í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar en Zlatan hefur spilað með báðum félögum.
Hann nefnir tvo leikmenn sem munu þurfa að stíga upp ef þeirra lið á að fara í næstu umferð.
,,Augljóslega þá er það Messi sem gerir gæfumuninn í þeim leikjum sem hann spilar,“ sagði Zlatan.
,,Það er ekkert leyndarmál. Fyrir Manchester United þá er það Paul Pogba sem gerir gæfumuninn.“
,,Þetta verður meiri barátta á milli Messi og Pogba, jafnvel þó að þetta sé liðsíþrótt.“
,,Í svona leikjum þá snýst þetta um liðin en ekki einhvern einn leikmann en þetta eru þeir leikmenn sem breyta leikjunum svo þetta verður áhugavert.“