Stærsta og vinsælasta íþróttakeppni á Íslandi hefst um helgina þegar Pepsi Max-deild karla fer af stað. Um er að ræða efstu deild karla í knattspyrnu og að mati margra er þessi vinsælasta íþrótt í heimi vorboðinn ljúfi. 12 lið eru í deildinni líkt og síðustu ár. Hart verður barist á toppnum en ekki síður á botninum.
Klukkan 14:00 á morgun eigast við Grindavík og Breiðbliks, suður með sjó. Því er spáð að Grindavík berjist fyrir lífi sínu en Blikar ætlar sér að vera í toppbaráttu.
Stuðlar á Lengjunni:
Grindavík – 4,11
Jafntefli – 3,1
Breiðablik – 1,6
Hægt er að veðja á leikinn á Lengjunn hérna.
Blikar mæta til leiks með talsvert breytt lið, miklvægir hlekkir hafa farið og nýir komið í staðinn. Áhugavert verður að sjá hvort Höskuldur Gunnlaugsson byrji á morgun, hann kom til félagsins í gær úr atvinnumennsku.
Grindavík er einnig með marga nýja leikmenn og Srdjan Tufegdzic er á sínu fyrsta ári, það gæti tekið tíma að smíða nýtt lið.
Hér að neðan eru líkleg byrjunarlið.
Grindavík (4-3-3)
Vladan Djogatovic, Sigurjón Rúnarsson, Josip Zeba, Marc McAusland, Elías Tamburini, Gunnar Þorsteinsson, Aron Jóhansson, Rodrigo Mateo, Alexander Veigar Þórarinsson, Patrick Nkoyi, Rene Joensen.
Breiðablik (4-2-3-1)
Gunnleifur Gunnleifson, Jonathan Hendricx, Elfar Freyr Helgason, Damir Muminovic, Davíð Ingvarsson, Andri Rafn Yeoman, Alexander Helgi Sigurðsson, Aron Bjarnason, Guðjón Pétur Lýðsson, Höskuldur Gunnlaugsson, Thomas Mikkelsen