Arsene Wenger, fyrrum stjóri Arsenal, telur sig vita hver mun þjálfa liðið í framtíðinni.
Wenger var þjálfari Arsenal í 22 ár og var við stjórnvölin er ófáir góðir leikmenn voru hjá félaginu.
Patrick Vieira er leikmaður sem var frábær undir stjórn Wenger en hann er í dag þjálfari Nice í Frakklandi.
Wenger telur að Vieira muni snúa aftur til Arsenal einn daginn en hann hefur nú stýrt New York City í Bandaríkjunum sem og Nice.
,,Ég sé hann sem framtíðarstjóra Arsenal, hann er of ungur til að hefja störf sem landsliðsþjálfari,“ sagði Wenger.
,,Hann mun lifa sínu lífi sem knattspyrnustjóri. Hann valdi réttu og gáfulegustu leiðina.“
,,Hann fór frá okkur þegar hann var ungur, fór svo til New York og er nú í Nice. Hann hefur þroskast mikið og hefur lært á starfið.“