Það er óhætt að segja að stuðningsmenn Arsenal séu ekki hrifnir af varnarmanninum Shkodran Mustafi.
Mustafi fær reglulega að spila hjá Arsenal en hann er þó mjög mistækur og er ekki traustvekjandi í öftustu línu.
Það er þó athyglisvert að skoða það að Mustafi er með betri tölfræði í ýmsu í samanburði við Virgil van Dijk, leikmann Liverpool.
Van Dijk hefur verið frábær á tímabilinu og þykir líklegur til að fá verðlaun fyrir sína frammistöðu í lok leiktíðar.
Tölfræði er þó með Mustafi í liði sem er athyglisvert þó að það sé erfitt að bera getu tvímenningana saman.