Paul Ince, fyrrum leikmaður Manchester United, sá liðið tapa 4-0 gegn Everton í ensku úvalsdeildinni í gær.
United var alls ekki sannfærandi á Goodison Park og er Ince einn helsti gagnrýnandi liðsins.
Hann nefndi fimm leikmenn sem hann vill sjá yfirgefa félagið í sumar er Ole Gunnar Solskjær byrjar að byggja upp sitt lið.
Solskjær mun fá væna buddu í sumar til að eyða í leikmenn og eru einhverjir sem þurfa að kveðja.
Ince nefndi þá Phil Jones, Nemanja Matic, Romelu Lukaku, Fred og Anthony Martial og vill sjá þá fara annað.
Jones hefur verið lengi í röðum United en á móti kom Fred aðeins til félagsins síðasta sumar frá Shakhtar Donetsk.