Það er útlit fyrir það að Callum Hudson-Odoi, vonarstjarna Chelsea, verði frá lengi vegna meiðsla.
Hudson-Odoi byrjaði hjá Chelsea í kvöld gegn Burnley en þurfti að yfirgefa völlinn í fyrri hálfleik.
Gianfranco Zola, aðstoðarstjóri Chelsea, staðfesti það eftir leikinn að útlitið væri ekki bjart.
Vængmaðurinn er að glíma við meiðsli í hásin og er líklegt að hann spili ekki meira á tímabilinu.
Það er áfall fyrir Chelsea en miðjumaðurinn N’Golo Kante fór einnig af velli meiddur í kvöld.
Leiknum lauk með 2-2 jafntefli á Stamford Bridge í kvöld en öll mörkin komu í fyrri hálfleik.