Callum Hudson-Odoi, leikmaður Chelsea, mun ekki spila meira á þessu tímabili vegna meiðsla.
Þetta staðfesti leikmaðurinn í kvöld en Hudson-Odoi sleit hásin í leik gegn Burnley í kvöld.
Það varð fljótt ljóst að meiðsli vængmannsins væru alvarleg og var hann tekinn af velli eftir 41 mínútu.
Enski landsliðsmaðurinn setti inn færslu á Twitter-síðu sína í kvöld þar sem hann staðfesti það að tímabilið væri búið.
,,Ég verð að leggja mig fram og koma til baka sterkari á næstu leiktíð,“ sagði þessi 18 ára gamli leikmaður í kvöld.
Really gutted to end my season with an Ruptured Achilles, gotta work hard and try and come back stronger for next season!!!???❤️ pic.twitter.com/PXC53WszdH
— Callum Hudson-Odoi (@Calteck10) 22 April 2019