Gonzalo Higuain komst á blað fyrir lið Chelsea í kvöld sem mætti Burnley í ensku úrvalsdeildinni.
Higuain hefur verið í smá erfiðleikum síðan hann samdi við Chelsea í janúarglugganum.
Argentínumaðurinn gerði tveggja ára langan lánssamning við Chelsea en hann er í eigu Juventus.
Framherjinn var tekinn af velli í síðari hálfleik í kvöld en Olivier Giroud kom inná í hans stað.
Það var ákvörðun sem Higuain var ekki ánægður með og var virkilega fúll út í stjóra sinn, Maurizio Sarri.
Myndband af hans viðbrögðum má sjá hér.
Higuain apparently did not want a drink of orange when he was taken off ? pic.twitter.com/zR155DSmXB
— paul (@mrpaulwallace) 22 April 2019