Burnley nældi í mikilvægt stig í ensku úrvalsdeildinni í kvöld er liðið mætti Chelsea.
Það var boðið upp á fjörugan fyrri hálfleik í dag en fjögur mörk voru skoruð og endaði hann með 2-2 jafntefli.
Ekkert mark var þó skorað í síðari hálfleik og þurfti Chelsea að sætta sig við stig í baráttu um Meistaradeildarsæti.
Tom Heaton átti mjög góðan leik í marki Burnley og kom í veg fyrir að liðið hafi fengið á sig fleiri mörk.
Heaton fékk gult spjald á 32. mínútu í fyrri hálfleik í dag fyrir að tefja, eitthvað sem er alls ekki algengt.
Burnley tók sinn tíma í hlutina á Stamford Bridge í kvöld og skilaði það að lokum sterku stigi.
Síðasti markvörður til að fá gult spjald svo snemma var Asmir Begovic en það var fyrir fimm árum síðan.