Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, bað stuðningsmenn félagsins afsökunar í dag.
Solskjær og félagar töpuðu 4-0 fyrir Everton á Goodison Park í hans versta leik síðan hann tók við í desember.
Solskjær var að vonum súr á svipinn eftir tapið og var ekki að leyna neinu eftir lokaflautið.
,,Það eina sem ég get gert er að biðja stuðningsmenn félagsins afsökunar,“ sagði Soslskjær.
,,Við vitum að við erum ekki næstum því í nógu góðu standi. Ég get ekki beðið eftir undirbúningstímabilinu.“
,,Ég mun ná árangri hérna og það eru leikmenn sem verða ekki hluti af því liði.“