PSG 3-1 Monaco
1-0 Kylian Mbappe
2-0 Kylian Mbappe
3-0 Kylian Mbappe
3-1 Aleksandr Golovin
Paris Saint-Germain er franskur meistari enn eitt árið en þetta var staðfest í dag.
PSG hefur unnið titilinn í Frakklandi sex sinnum á síðustu sjö árum en Monaco vann einn titil á milli.
Lille var eina liðið sem gat náð PSG í töflunni en eftir jafntefli við Toulouse á liðið ekki möguleika.
PSG spilaði svo leik gegn Monaco síðar í kvöld og vann þar sannfærandi 3-1 heimasigur.
Kylian Mbappe var frábær gegn sínum fyrrum félögum og skoraði þrennu í sigrinum.