Stuðningsmenn Arsenal eru að verða mjög þreyttir á varnarmanninum Shkodran Mustafi.
Mustafi þykir ekki vera nógu traustur varnarmaður og átti ekki góðan leik gegn Crystal Palace í dag.
Palace gerði sér lítið fyrir og skoraði þrjú mörk á Emirates og hafði að lokum betur, 3-2.
Wilfried Zaha skoraði eitt af mörkum Palace en það verður að skrifast á Mustafi.
Þjóðverjinn reyndi að skýla boltanum frá Zaha við vítateigslínuna en það fór heldur illa og tók Zaha einfaldlega boltann og skoraði.
Atvikið má sjá hér.
NAH IM FUCKING MAD! WTF IS THIS? pic.twitter.com/U1Ok2EsTqD
— Frimpon (@FrimponOnline) 21 April 2019