Arsenal tapaði mjög óvænt leik í ensku úrvalsdeildinni í dag er liðið fékk Crystal Palace í heimsókn.
Arsenal þurfti á stigum að halda í Evrópubaráttunni en Palace mætti ferskt til leiks í London og vann 3-2 sigur.
Þeir Christian Benteke, Wilfried Zaha og James McArthur sáu um að tryggja Palace stigin þrjú.
Liverpool vann á sama tíma mikilvægan sigur á Aroni Einari Gunnarssyni og félögum.
Aron lék allan leikinn með Cardiff sem þurfti að sætta sig við 2-0 tap gegn toppliðinu.
Arsenal 2-3 Crystal Palace
0-1 Christian Benteke(17′)
1-1 Mesut Özil(47′)
1-2 Wilfried Zaha(61′)
1-3 James McArthur(69′)
2-3 Pierre-Emerick Aubameyang(77′)
Cardiff 0-2 Liverpool
0-1 Georginio Wijnaldum(57′)
0-2 James Milner(víti, 81′)