Real Madrid mun á allra næstu dögum ganga frá kaupum á Eden Hazard frá Chelsea, ef marka má frétt Marca.
Sagt er að Chelsea muni fá 86 milljónir punda í sinn vasa fyrir sinn besta leikmann.
Chelsea hefur ekki tekist að framlengja við Hazard og hann á nú bara ár eftir af samningi sínum. Félagið er því neytt til að selja hann í sumar, annars færi hann frítt.
Draumur Hazard er að spila með Real Madrid og fyrir Zinedine Zidane, hann slær tvær flugur í einu höggi þarna.
Real Madrid er að fara í miklar breytingar á liði sínu í sumar en félagiað hefur nú þegar keypt Eder Militao og Rodrygo Goes.