Joey Barton var stöðvaður af lögreglunni um helgina en hann stýrir liði Fleetwood Town í ensku þriðju deildinni.
Barton er ásakaður um að hafa ráðist á Daniel Stendel eftir leikinn en Fleetwood tapaði gegn Barnsley, 4-2.
Barton er sagður hafa brotið tvær tennur í Stendel í leikmannagöngunum eftir leik en sá síðarnefndi er stjóri Barnsley.
Barnsley hefur kvartað til yfirvalda og mun lögreglan mæta á æfingasvæði, Fleetwood í dag. Þar verður skýrsla tekinn af Barton.
Barton gæti átt refsingu yfir höfði sér, en hann hefur oftar en ekki komið sér í vandræði. Þar á meðal er dvöl í fangelsi.