Tottenham spilar við lið Ajax í undanúrslitum Meistaradeildarinnar en það varð ljóst í kvöld.
Tottenham tapaði 4-3 gegn Manchester City á Etihad í 8-liða úrslitum en fer áfram eftir að hafa unnið fyrri leikinn 1-0.
Útivallarmörkin koma Tottenham því í næstu umferð og þar mætir liðið Ajax sem hefur slegið Real Madrid og Juventus úr leik.
Það er ansi athyglisvert að fjórir leikmenn Tottenham sem léku í kvöld eru fyrrum leikmenn Ajax.
Það eru varnarmennirnir Jan Vertonghen, Toby Alderweireld og Davinson Sanchez og svo einnig miðjumaðurinn Christian Eriksen.
Þeir fjórir munu því mæta sínu fyrrum félagi í næstu umferð en Ajax er sterkara í dag en liðið hefur verið í fjölmörg ár.
Four former Ajax players featured for Spurs in tonight’s #UCL quarter-final:
?? Jan Vertonghen
?? Toby Alderweireld
?? Christian Eriksen
?? Davinson SanchezThe semi-final is going to be amazing. pic.twitter.com/o7DS0Q7dDO
— Squawka News (@SquawkaNews) 17 April 2019