Aron Skúli Brynjarsson og Ingvi Þór Albertsson hafa báðir fengið félagaskipti til Kórdrengja, sem í sumar leika í 3. deild karla.
Kórdrengir komust upp úr 4. deildinni síðasta sumar og hafa styrkt lið sitt í sumar.
,,Aron Skúli, fæddur 1998, er uppalinn Bliki en hefur spilað með ÍR og KH síðustu ár og verið einn af þeirra lykilmönnum. Aron er hraður, líkamlega sterkur og marksækinn. Hann spilaði sinn fyrsta leik með Kórdrengjum sl. laugardag í 1. umferð Mjólkurbikarsins og skoraði þrennu,“ segir á Facebook síðu Kórdrengja.
,,Ingvi Þór, fæddur 2000, er uppalinn Skagamaður en hann hefur einnig spilað með Selfossi og Skallagrím. Hann var einn af lykilmönnum Skallagríms í fyrra sem fóru upp í þriðju deild á síðasta tímabili.“
Að auki hafa Kórdrengir fengið í vetur:
Daníel Gylfason
Einar Orri Einarsson
Kristinn Aron Hjartarson
Magnús Þórir Matthíasson
Sigurjón Daði Valdimarsson
Unnar Már Unnarsson