Avram Grant, fyrrum stjóri Chelsea, hefur tjáð sig um Jose Mourinho sem var rekinn frá Manchester United í desember.
Grant tók við af Mourinho hjá Chelsea á sínum tíma en sá síðarnefndi tók við Inter Milan á Ítalíu og gerði frábæra hluti.
Grant segir að Mourinho sé enginn snillingur en er heldur ekki gagnslaus eins og margir vilja meina.
,,Hann var aldrei snillingur þegar þeir kölluðu hann það og hann er ekki gagnslaus eins og þeir eru að segja í dag,“ sagði Grant.
,,Hann er ekki að upplifa sína bestu tíma en þetta snýst um hvernig hann bregst við og horfir fram á veginn.“
,,Ég held að hann muni koma ykkur á óvart því hann kemur vitrari til baka. Hann hefur ekki unnið sinn síðasta titil.“