Lionel Messi var að bæta við sínu öðru marki gegn Manchester United í Meistaradeild Evrópu.
Staðan er nú orðin 2-0 fyrir heimamönnum en Messi sá um að skora bæði mörkin.
Barcelona er nú yfir samanlagt 3-0 í einvíginu en liðið vann fyrri leikinn 1-0 á Old Trafford.
Seinna markið skrifast á markmanninn David de Gea sem gerði sig sekan um slæm mistök hjá þeim ensku.
De Gea missti boltann undir sig eftir laust skot Messi og hafnaði knötturinn í netinu.