Denis Suarez gekk í raðir Arsenal í janúar en hann kom til félagsins frá Barcelona á láni.
Suarez hefur þó lítið sem ekkert fengið að spila og hefur aðeins verið á vellinum í 67 mínútur í deildinni.
Felix Guende, umboðsmaður Suarez, viðurkennir að sinn maður sé ekki að upplifa góða tíma.
,,Hann á tvö ár eftir í Barcelona. Þetta ár á Englandi hefur ekki verið það besta,“ sagði Guende.
,,Hann hefur ekki spilað mikið og nær ekki að finna taktinn. Hann er meiddur eins og er.“
,,Við erum að bíða eftir niðurstöðunum.“