Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United tekur 22 leikmenn með sér til Barcelona í dag.
Liðið leikur í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar á morgun, um er að ræða síðari leikinn.
United tapaði fyrri leiknum 0-1 á heimavelli og þarf því að sækja til sigur.
Luke Shaw tekur út leikbann í leiknum en Alexis Sanchez og Nemanja Matic snúa aftur eftir meiðsli.
Hér að neðan er líklegt byrjunarlið United í leiknum.