Watford 0-1 Arsenal
0-1 Pierre-Emerick Aubameyang(10′)
Það fór fram einn leikur í ensku úrvalsdeildinni í kvöld er Watford og Arsenal áttust við í úrvalsdeildinni.
Það var mikið fjör á Vicarage Road í kvöld en gestirnir frá London höfðu betur með einu marki gegn engu.
Pierre-Emerick Aubameyang skoraði eina markið í kvöld en hann nýtti sér mistök Ben Foster í marki Watford á 10. mínútu.
Mínútu seinna fékk Troy Deeney, fyrirliði Watford, að líta beint rautt spjald fyrir olnbogaskot.
Bæði lið fengu færin til að bæta við mörkum en inn vildi boltinn ekki og lokastaðan, 1-0.