Það fóru fram tveir leikir í Meistaradeild Evrópu í gær en leikið var í 8-liða úrslitum keppninnar.
Það var spilaður stórleikur á Old Trafford þar sem Manchester United fékk lið Barcelona í heimsókn. Aðeins eitt mark var skorað í þeim leik en það gerðu gestirnir frá Spáni Í fyrri hálfleik.
Luke Shaw varð þá fyrir því óláni að skora sjálfsmark sem tryggði Barcelona sigur og er liðið með forystu fyrir seinni leikinn.
Hörmungar United á heimavelli í Meistaradeildinni halda þar með áfram, liðið hefur bara skorað eitt mark í fimm leikjum.
Það mark kom á 91 mínútu gegn slökuðu liði Young Boys fyrir áramót, markið skoraði Marouane Fellaini sem var svo seldur til Kína í janúar.