Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, var nokkuð sáttur með spilamennsku sinna manna í kvöld.
United mætti Barcelona í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og höfðu Börsungar betur, 1-0.
Solskjær segir að sínir menn hafi gert vel og þá sérstaklega gegn besta leikmanni heims, Lionel Messi.
,,Við vorum að spila við gott lið. Við vissum að við þyrftum að verjast mikið án boltanns og það gæti gert þig þreyttan áður en þú færð þitt tækifæri. Við förum í seinni leikinn með eitt markmið: við þurfum að skora,“ sagði Solskjær.
,,Við gerðum eins vel og við gátum gegn Messi, við héldum skipulaginu og þetta hefði getað endað báðum megin.“
,,Ég held að við höfum ekki hitt rammann sem eru vonbrigði. Við vorum að spila gegn frábæru liði. Þetta var erfitt en við vitum að við getum skorað þarna.“