Það er stórleikur í Meistaradeild Evrópu í kvöld þegar Barcelona heimsækir Manchester United, um er að ræða fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum.
Ljóst er að hart verður barist en United þarf í raun kraftaverk til að komast áfram.
United hefur spilað illa síðustu vikur á meðan Barcelona er að labba yfir La Liga.
Búist er við að Anthony Martial verði geymdur á bekknum í kvöld og að Ander Herrera og Nemanja Matic verði ekki með.
Líkleg byrjunarlið eru hér að neðan.