Ole Gunnar Solskjær hefur unnið 13 af 16 leikjum sínum sem stjóri Manchester United, eina tapið kom gegn PSG í Meistaradeildinni.
Um var að ræða fyrri leik liðanna í 16 liða úrslitum en leikurinn fór fram á Old Trafford, United þarf því kraftaverk í París í kvöld.
Til að gera stöðuna verri eru mikil meiðsli í herbúðum United. Solskjær verður án Anthony Martial, Nemanja Matic, Phil Jones, Jesse Lingard, Juan Mata, Ander Herrera, Alexis Sanchez, Antonio Valencia, Matteo Darmian og Paul Pogba sem er í banni.
United tapaði fyrri leiknum 0-2 og þarf kraftaverk með laskað lið til að koma til baka.
Hér að neðan má sjá líkleg byrjunarlið í kvöld.